66. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Fjarfundur, þriðjudaginn 28. apríl 2020 kl. 20:10


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 20:10
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 20:10
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 20:10
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 20:10
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 20:10
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 20:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 20:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 20:10
Páll Magnússon (PállM), kl. 20:10
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 20:10

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl.

Bókað:

1) 724. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 20:10
Til fundarins kom Atli Þór Fanndal frá Geimvísinda- og tækniskrifstofu.
Kl. 20:49. Erna Magnúsdóttir og Eyja Margrét Brynjarsdóttir frá Vísindafélagi Íslands. Gestirnir kynntu umsagnir sínar og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 21:25
Rætt var um þá vinnu sem framundan er við að afgreiða frumvarpið. Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 21:29
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 21:30